Erlendum viðskiptamönnum ekki tekið fagnandi

Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjafyrirtækisins Össurar, mun á Viðskiptaþingi í dag ræða sérstöðu Íslendinga og muninn á því að koma með viðskiptamenn til Íslands og að vera sjálfur útlenskur viðskiptamaður.

Að hans mati er erlendum viðskiptamönnum ekki tekið fagnandi hérlendis, öfugt við reynslu hans af því hvernig þeim er tekið fagnandi þegar hann kemur sem erlendur viðskiptamaður til annarra landa.

Össur hf. skilaði fyrir tæpri viku ársuppgjöri þar sem kom fram að söluvöxtur á árinu 2011 hefði verið 9%. Meðal annars sem Jón segir er að Össur þurfi að finna fjárfestingakosti eða greiða út arð.

Jón hefur þessa vikuna verið á ferðalagi um Evrópu að kynna ársuppgjörið fyrir fjárfestum á ýmsum mörkuðum. Nánar er rætt við Jón Sigurðsson í Morgunblaðinu á morgun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK