Viðskipti
| AFP
| 15.2.2012
| 21:32
Lækkun vestanhafs
Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum lækkuðu í kvöld en fjárfestar óttast að gríska ríkið færist nær greiðslufalli.
Dow Jones-vísitalan lækkaði um 0,76%, S&P 500 vísitalan lækkaði um 0,54% og Nasdaq um 0,55%.
FTSE-hlutabréfavísitalan lækkaði einnig í Lundúnum en bæði DAX-vísitalan í Frankfurt og CAC í París hækkuðu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















