Viðskipti
| AFP
| 16.2.2012
| 7:38
Societe Generale tapar á Grikklandi
Franski bankinn Societe Generale tilkynnti í morgun að nettó hagnaður hans hefði dregist saman um 39% á síðasta ári í kjölfar afskrifta upp á 890 milljónir evra vegna efnahagsástandsins á Grikklandi og slakari fjárfestingastefnu bankans.
Hagnaður bankans var 2,38 milljarðar evra sem er töluvert fyrir neðan það sem greiningaraðilar gerðu ráð fyrir eða 2,72 milljarða evra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















