Verið erfiður aðdragandi
Malcolm Walker, stofnandi Iceland Foods, kveðst afar ánægður með það að samningar hafi tekist á milli hans og slitastjórna Landsbankans og Glitnis, um kaup hans og samstarfsaðila á 77% hlut í Iceland fyrir 1,55 milljarða punda, liðlega 300 milljarða króna.
„Þetta hefur verið langur og erfiður aðdragandi, bæði fyrir mig og allt mitt starfsfólk, sem hefur verið í mikilli óvissu um starfsöryggi sitt og framtíð,“ sagði Walker í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Nú hefur óvissunni verið eytt og við erum öll mjög ánægð með niðurstöðuna.“
Aðspurður hverjar hann telji vera rekstrarhorfur keðjunnar, í ljósi bágs efnahagsástands í Bretlandi, svarar Walker: „Þú mátt ekki gleyma því að ég og Iceland eigum okkur 42 ára sögu og höfum í sameiningu gengið í gegnum ýmsar hremmingar og kreppur á tímabilinu. En ég er bjartsýnn og þess fullviss að félagið er nú í réttum höndum.“




















