72 kaupsamningum þinglýst
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 10. febrúar til og með 16. febrúar 2012 var 72. Þar af voru 55 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um sérbýli og fimm samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.897 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,4 milljónir króna. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands.
Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 204 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,4 milljónir króna.
Á sama tíma var 9 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 142 milljónir króna og meðalupphæð á samning 15,8 milljónir króna.
Þá var 5 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 47 milljónir króna og meðalupphæð á samning 9,5 milljónir króna.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.



















