Bandaríkjamönnum kennt að elda
Eggert Ragnarsson viðmótshönnuður hefur verið búsettur í Boston síðasta árið og unnið þar að nýstárlegu verkefni.
„Um er að ræða matreiðsluskóla á netinu á vegum America‘s Test Kitchen, en það rótgróna fyrirtæki hefur öðlast sess í hugum Bandaríkjamanna sem einhver besta heimildin um eldamennsku, eldhúsáhöld og matvæli,“ segir Eggert.
„Auk þess að hafa um árabil framleitt mjög vinsæla matreiðsluþætti gefur America‘s Test Kitchen út fjölda matreiðslubóka og tvö tímarit, en starfsemin einkennist af mjög metnaðarfullri tilraunastarfsemi og prófunum. Þannig má reikna með að hver uppskrift sem birtist í bókum þessa matreiðsluveldis hafi verið prófuð ekki sjaldnar en 50 sinnum og markmiðið alltaf að finna hina „fullkomnu uppskrift“ að hverjum rétti.“
Í ítarlegri umfjöllun í Morgunblaðinu um matreiðsluskólann sem Eggert hefur hannað útlitið á er aðgengilegur á slóðinni www.testkitchenschool.com. Og þrátt fyrir að hafa aðeins verið opinn um stutt skeið hafa viðtökur verið framar vonum.



















