Viðskipti
| mbl
| 20.2.2012
| 21:32
Fá 100 milljónir punda frá Landsbankanum
Bresk sveitarfélög munu fá greiddar 100 milljónir punda, 19,5 milljarða króna, frá slitastjórn Landsbankans í þessari viku. Er þetta fyrsta greiðslan sem sveitarfélögin fá greidd í kjölfar málsóknar Sambands sveitarfélaga á Bretlandi, Local Government Association, til þess að tryggja stöðu forgangskröfuhafa í bú Landsbankans og Glitnis.
Alls áttu um 80 bresk sveitarfélög 413 milljónir punda inn á reikningum Landsbankans. Telur LGA að 98% fáist upp í kröfuna, samkvæmt vef LGA, og er það meðal annars rakið til sölunnar á hlut Landsbankans og Glitnis í Iceland Foods.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















