Gert að skila bónusum
Nokkrir yfirmenn breska bankans Lloyds Banking Group þurfa að gefa eftir hluta af þeim bónusum sem þeir fengu greiddan á síðasta ári vegna mistaka sem bankinn gerði við sölu á tryggingum til viðskiptavina.
Alls er um að ræða bónusgreiðslur til þrettán stjórnenda bankans sem alls fengu, eða áttu að fá, 2 milljónir punda, 390 milljónir króna, í bónus. Meðal annars Eric Daniels, fyrrum forstjóri bankans missir 600 þúsund punda kaupauka sem hann fékk greiddan fyrir árið 2010, samkvæmt frétt BBC. Fjórir þeirra eru í stjórn bankans.
Samkvæmt frétt BBC var kaupauki Daniels lækkaður um 40% en hann átti að fá greiddar 1,45 milljónir punda. Lloyds greiðir bónusa í formi hlutabréfa í bankanum og því getur bankinn lækkað fjárhæðina afturvirkt. Sú regla gildir hjá bankanum að starfsmenn og stjórnendur sem fá greidda bónusa mega selja hlutabréfin eftir þrjú ár.
Lloyds hefur þurft að setja 3,2 milljarða punda á afskriftarreikning vegna skaðabóta sem bankinn þarf að greiða viðskiptavinum sem voru blekktir til að kaupa tryggingar hjá bankanum.
Bónusgreiðslur fyrir síðasta ár, sem greiða átti út í ár verða einnig lækkaðar. Í síðasta mánuði greindi forstjóri bankans, Antonio Horta-Osorio, að hann myndi ekki þiggja bónus fyrir síðasta ár.
Breska ríkið á 40,2% hlut Lloyds eftir að bankanum var komið til bjargar í kreppunni árið 2008.




















