Viðskipti
| Bæjarins besta
| 20.2.2012
| 9:37
| Uppfært
18:45
Gert ráð fyrir 15,5 milljóna hagnaði
Áætlun hafnarsjóðs Ísafjarðarbæjar gerir ráð fyrir 15,5 milljóna króna hagnaði af starfsemi hafnarinnar í ár. Munar þar mestu um áætlaðar auknar tekjur vegna hækkaðs aflagjalds um 5% og meiri fjölda erlendra skemmtiferðaskipa. Í stefnuræðu bæjarstjóra með fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2012 kemur fram að viðhald og fjárfesting hefur verið dregið saman og draga á úr kostnaði við nokkra kostnaðarliði, segir í frétt á vef Bæjarins besta.
Bókaðar komur skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar í ár eru 33 talsins og fjöldi farþega skemmtiferðaskipa sem heimsækir Vestfirði fer þá í fyrsta sinn yfir 30.000 farþega.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















