Viðskipti
| AFP
| 20.2.2012
| 15:40
Hækkun á mörkuðum
Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað það sem af er degi vegna væntinga um að gengið verði frá samkomulagi um björgunarpakka fyrir Grikki í kvöld.
Engin viðskipti eru í kauphöllinni í New York þar sem almennur frídagur er í Bandaríkjunum í dag.
Í Lundúnum hefur FTSE-vísitalan hækkað um 0,69%, CAC-vísitalan hefur hækkað um 0,59% í París og DAX í Frankfurt um 1,27%.
Í Mílanó hefur FTSE Mib-vísitalan hækkað um 0,66% og í Madríd hefur Ibex-vísitalan hækkað um 1,51%.
Evran hefur hækkað gagnvart Bandaríkjadal í dag og stendur í 1,3262 dölum samanborið við 1,3141 dal á föstudagskvöldið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















