Viðskipti
| AFP
| 20.2.2012
| 10:00
| Uppfært
10:16
Hækkun á mörkuðum í Evrópu
Hækkun var á mörkuðum í Evrópu í morgun sem rakin er til bjartsýni um að neyðarlán til Grikkja verði samþykkt af fjármálaráðherrum Evrópusambandsins í dag.
FTSE-vísitalan hækkaði um 0,70%, franska CAC-vísitalan um 0,80% og DAX-vísitalan í Kauphöllinni í Frankfurt um 0,93%.
Greiningarsérfræðingur í frönsku kauphöllinni segir að niðurstöðu fundar fjármálaráðherra Evrópusambandsins sé nú beðið með eftirvæntingu. Markaðurinn telji greinilega að neyðarlán til Grikkja verði samþykkt á fundinum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















