Ný þjónusta fyrir kvikmynda- og tónleikageirann
Fyrirtækið TVG-Zimsen hefur tekið yfir starfsemi flutningsmiðlunarinnar Vectura og bætt þar með við sig nýrri þjónustu fyrir kvikmynda- og tónleikageirann. Mikil gróska hefur verið meðal erlendra aðila í framleiðslu kvikmynda og auglýsinga hér á landi og hefur TVG–Zimsen sett sér markmið um að þjónusta fyrirtæki á þessu sviði í flutningum og tengdri þjónustu.
Sem leið að þeim markmiðum hefur TVG-Zimsen tekið yfir starfsemi flutningsmiðlunarinnar Vectura. Stofnandi hennar, Þórður Björn Pálsson, mun hefja störf hjá TVG-Zimsen frá og með deginum í dag og byggja þar upp sérhæfða deild á þessu sviði en hann hefur 15 ára reynslu í að þjónusta þennan geira hér á landi.
„Vectura hefur haft afar sterka stöðu í allri sérhæfingu er snýr að kvikmynda-, auglýsinga- og tónleikageiranum. Það er mikil gróska í kvikmyndagerð á Íslandi og erlend kvikmyndafyrirtæki hafa sótt í auknum mæli hingað til lands,“ segir segir Björn Einarsson, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen. Í frétt frá TVG-Zimsen er auk þess haft eftir honum að fastlega megi búast við auknum verkefnum, stórum og smáum í þessum geira á næstu misserum.
„Vinsældir Íslands hafa aukist, ekki síst vegna hinnar stórbrotnu og sérstöku náttúru sem og gengisþróunar sem er hagstæð fyrir erlenda aðila. Einnig bjóða íslensk stjórnvöld upp á hagstætt skattaumhverfi t.d. endurgreiðslu hluta framleiðslukostnaðar hér á landi sem kemur sér vel fyrir erlend fyrirtæki,“ segir Björn Einarsson.
Þá segir Björn að búast megi við að erlent auglýsingagerðarfólk muni leita í meira mæli til Íslands og að með tilkomu Hörpu muni tónleikahald erlendra listamanna stóraukast.
„Þá verðum við í samstarfi við sérhæfðar erlendar flutningsmiðlanir sem munu bóka inn í flutningakerfin okkar,“ segir Björn.




















