Viðskipti
| AFP
| 20.2.2012
| 12:46
| Uppfært
15:01
Olíuverð í hæstu hæðum
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið hærra í níu mánuði. Skýringin er meðal annars sú að Íran hefur ákveðið að hætta að selja Frökkum og Bretum olíu. Þá hefur fyrirhugað samkomulag um neyðarlán til Grikkja einnig áhrif.
Sérfræðingur Commerzbanka segir áhrifin af ákvörðun Írana ekki líkleg til að hafa langvarandi áhrif. Frakkar kaupa til dæmis aðeins um 3% af sinni olíu frá Íran. Þá er talið að Bretar flytji enga olíu inn frá Íran yfir höfuð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















