Spá 1% hækkun
Hagfræðideild Landsbankans telur að verðbólgan hafi náð hámarki að sinni mbl.is/Arnaldur Halldórsson
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 1% milli mánaða. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga lækka úr 6,5% í 6,3%. Líklegt er að verðbólgan hafi náð hámarki að sinni í janúar og fari lækkandi eftir því sem líður á árið, að því gefnu að olíuverð á heimsmarkaði og gengi krónunnar haldist stöðugt, að því er segir í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans.
Venju samkvæmt hækkar verðlag í febrúar vegna útsöluloka. Í febrúar gætir einnig áhrifa af hækkandi bensínverði en eldsneytisverð hækkaði um tæp 3% milli mánaða samkvæmt verðkönnun hagfræðideildar. Helstu áhrifavaldar í febrúar Í febrúar er gert ráð fyrir að stærsti hluti hækkunar vísitölu neysluverðs verði vegna verðhækkana á fatnaði, húsgögnum og eldsneyti.



















