Blendin viðbrögð á olíumarkaði
Verð á hráolíu lækkaði í Lundúnum í dag í kjölfar ákvörðunar Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um að koma Grikkjum til bjargar á ný. Hins vegar hækkaði verð á olíu töluvert í New York.
Í gær varð mikil hækkun á olíumörkuðum beggja vegna Atlantsála vegna ákvörðunar Írana að hætta útflutningi á olíu til Bretlands og Frakklands. Hefur heimsmarkaðsverð á olíu ekki verið hærra í níu mánuði.
Í dag hefur verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í apríl lækkað um 60 sent í Lundúnum og er 119,45 Bandaríkjadalir tunnan.
Í New York hefur verð á hráolíu hækkað um 1,28 dali og er 104,52 dalir tunnan.
Segja sérfræðingar að á meðan markaðir í Evrópu fagni samkomulagi um aðstoð við Grikki þá óttist menn afleiðingar þess að olía hætti að berast frá Íran. Eins eigi eftir að koma í ljós hver áhrifin af samkomulaginu við Grikki verða.



















