Breyttar aðferðir hjá Nýherja
Stjórn Nýherja hefur ákveðið að breyta verklagi og vinnubrögðum sínum og kom Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður Nýherja, inná það í ræðu sinni á aðalfundi félagsins á föstudaginn var.
Stjórn félagsins hittist 19 sinnum á stjórnarfundum á liðnu starfsári, en auk þess skipaði hún endurskoðunarnefnd sem hefur hist fyrir birtingu árshlutauppgjörs.
Mikil vinna var lögð í að bæta starfshætti stjórnar og stjórnenda. Stjórnin hefur farið yfir allar helstu reglur sem í gildi hafa verið og stefnu félagsins á ýmsum sviðum. Hún hélt í fyrsta sinn sérstakan fund þar sem hún mat eigin störf í lok starfsárs.
Að sögn Benedikts ræðst tíðni stjórnarfunda að miklu leyti af verkefnum, það vildi þannig til að stjórnin þurfti að hittast oftar til þess að afgreiða mál auk venjubundinna funda. Það er ekki víst að þannig verði það til frambúðar.
Farið yfir verklag
Endurskoðendur Nýherja hafa skilað stjórn skýrslu um það sem betur mætti fara í verklagi við bókhald og fjármál félagsins. Stjórn hefur farið yfir þessa þætti með endurskoðendum og stjórnendum félagsins.
Í ræðu sinni rakti Benedikt að ein af nýjungum stjórnar felst í því að sérhvert svið setur fram stuttan lista um það sem betur má fara í rekstri þess sviðs. Stjórn mun svo fara reglulega yfir það hvernig gengur að ná markmiðunum.
Að sögn Benedikts var þessi úttekt unnin útfrá lista sem settur var fram af Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti í fyrirtækjum.
„Við fórum sem sé í gegnum öll þessi atriði sem á listanum eru og hver um sig mætti undirbúinn með sínar athugasemdir. Á þessum fundi var einungis stjórn og ekki forstjóri eða aðrir starfsmenn. Margt reyndist í góðu lagi, en aðrir þættir voru með þeim hætti að þá mátti betrumbæta. Sumt var smávægilegt en annað felur í raun og veru í sér breytingar á verklagi og aðferðum stjórnar,“ sagði Benedikt.
Forgangsmál valin
Að sögn Benedikts samþykkti stjórn Nýherja að í upphafi árs skyldu allar deildir setja fram lista um þrjú til fimm mál sem sett væru í forgang á árinu. Á hverjum fundi fengi stjórn upplýsingar um hvernig þessum málum miðaði þannig að sæist með grænu, gulu eða rauðu ljósi hvort þau væru í réttu horfi. Mikilvægt er að hver deild setji sér mælikvarða sem auðveldi þeim að sjá hvort þær séu á réttri leið. Yfirlit um stöðu þessara mála verði send út fyrir stjórnarfundi.
„Með þessu móti hyggst stjórnin fylgjast betur með starfinu sjálfu í einstökum deildum en ekki bara fjárhagslegum niðurstöðum,” sagði Benedikt.
Kynjahlutfallið jafnað
Þá vekur athygli að hlutfall kynja er nú jafnara í stjórn Nýherja en áður en að þessu sinni voru þrír karlmenn og þrjár konur í framboði til stjórnar og varamanns í stjórn. Í aðalstjórn eru nú tvær konur og þrír karlar.
„Ég hef talið að það væri mikilvægt í fyrirtæki þar sem starfsmenn hafa að stórum hluta verið karlar, væntanlega ekki síst vegna þess að karlar hafa meira lagt sig eftir menntun á þessu sviði, væri lögð áhersla á að efla hlut kvenna. Ég hef sjálfur unnið eftir því prinsippi annars staðar og undir minni stjórn kom fyrsta kona í stjórn Eimskips og fyrsta kona í stjórn Skeljungs. Það gafst gott tækifæri til þess að fá hæfar konur inn í stjórn Nýherja í fyrra þegar fjölgað var um tvo stjórnarmenn. Einn stjórnarmanna gekk úr stjórn og aftur fannst góður fulltrúi sem er kona. Hins vegar hljóta hæfileikar að vega þyngra en kynferði eitt og sér,” sagði Benedikt.



















