Viðskipti
| AFP
| 21.2.2012
| 21:42
Dow yfir 13 þúsund stig
Dow Jones-hlutabréfavísitalan fór yfir 13 þúsund stig í kvöld í kauphöllinni í New York en það hefur ekki gerst síðan í maí 2008. Vísitalan lækkaði hins vegar aftur og lokaði í 12.966,07 stigum.
Um tíma stóð Dow Jones-vísitalan í 13.005,04 stigum en svo hátt hefur vísitalan ekki farið frá því fjármálamarkaðir fóru að leita niður á við í byrjun árs 2008 er fjármálakreppan braust út og djúp efnahagslægð tók við á mörkuðum heims.
S&P 500 vísitalan hækkaði um 0,07% og Nadaq lækkaði um 0,11%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















