Jákvæðar fréttir frá Spáni
Spænska ríkið tók tilboðum í 2,5 milljarða evra í ríkisskuldabréfaútboði sem lauk í dag. Um bréf til þriggja og sex mánaða er að ræða og lækkaði ávöxtunarkrafan töluvert frá síðasta sambærilega útboði Seðlabanka Spánar.
Alls bárust tilboð fyrir 14,8 milljarða evra í ríkisbréf til þriggja mánaða og sex mánaða. Til stóð að taka tilboðum fyrir 1,5-2,5 milljarða evra.
Ávöxtunarkrafan á þriggja mánaða bréfin er 0,396% en var 1,285% í janúar. Á sex mánaða bréf lækkaði krafan úr 1,874% í 0,764%.
Spánn hefur átt í verulegum erfiðleikum undanfarið og hefur nýtt sér betri aðgang að lánsfjármörkuðum að undanförnu til þess að fá meira að láni en til stóð. Það sem af er ári hefur spænska ríkið tekið lán fyrir ríflega þriðjung af þeirri fjárhæð sem til stóð að sækja á markaði í ár.



















