Viðskipti
| AFP
| 21.2.2012
| 15:55
Lækkun á mörkuðum
Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa lækkað í dag og evran hefur veikst gagnvart Bandaríkjadal og er þetta rakið til ótta um að meira þurfi að gera til þess að koma Grikkjum til bjargar en þegar hefur verið ákveðið.
Á Wall Street hækkuðu hlutabréfavísitölur mikið þegar viðskipti hófust í dag en lækkuðu fljótlega á ný.
Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 0,29%, DAX í Frankfurt lækkaði um 0,72% og CAC í París um 0,74%.
Evran hækkaði töluvert fljótlega eftir að tilkynnt var um aðstoð til handa Grikkjum og var um tíma skráð á 1,3299 dali en lækkaði fljótlega í 1,3242 dali.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















