Viðskipti
| mbl
| 21.2.2012
| 15:00
| Uppfært
18:16
Skuldirnar ekki horfnar
Seðlabankastjóri Noregs, Øystein Olsen, segir að þrátt fyrir að björgunarpakki til Grikklands upp á 237 milljarða evra hafi verið samþykktur hverfi skuldir Evrópuþjóða ekki við það.
Þrátt fyrir jákvæðar fréttir hafa skuldirnar ekki horfið, heldur er búið að flytja þær til. Enn er verið að ræða hversu mikið af reikningnum fellur á hvern, sagði Olsen á blaðamannafundi í Ósló í dag.
„Við ættum kannski að vera hæfilega bjartsýn en ég er ekki viss um að við höfum séð það síðasta í ólgunni í Evrópu,“ sagði Olsen.
Hann tók hins vegar fram að fagna ætti niðurstöðunni í Grikklandi og hún væri jákvætt skref.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















