Viðbrögð markaða misvísandi
Eftir margra vikna óvissu er 130 milljarða evru björgunarpakki Grikkja loksins í höfn. Fjármálaráðherrar evruríkjanna samþykktu lánið nú undir morgun eftir að hafa fundað alla nóttina. Þar með er ljóst að Grikkir munu geta staðið í skilum þegar 14,5 milljarðar evra falla á gjalddaga þann 20. mars næstkomandi.
Þjóðargjaldþroti Grikkja hefur því verið afstýrt í bili. Engu að síður er ljóst að gríðarlegir erfiðleikar bíða nú Grikkja. Mjög erfiður niðurskurður er framundan og þá eru margir fullir efasemda um að björgunarpakkinn dugi til, og telja að aðeins sé verið að kaupa Grikkjum gálgafrest. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka.
Samhliða afgreiðslu björgunarpakkans er nú einnig búið að ganga frá almennri afskrift af grískum ríkisskuldabréfum sem að grynnkar á skuldum ríkisins um 100 milljarða evra. Eftir samningaviðræður sem staðið hafa yfir meira og minna síðan í október sl. er niðurstaðan sú að eigendur bréfanna afskrifa sem nemur 53% af upprunalegu nafnverði bréfanna.
Viðbrögð markaða við þessum tíðindum í morgun eru misvísandi. Á gjaldeyrismarkaði hefur evran styrkst gagnvart Bandaríkjadollar í dag og stendur EUR/USD gjaldmiðlakrossinn nú þegar þetta er ritað (10:15) í 1,3237.
Í gær þegar ljóst var að björgunarpakkinn yrði líklega samþykktur lækkaði ávöxtunarkrafa á ríkiskuldabréf annarra skuldsettra evruríkja að Portúgal undanskildu. Krafan hefur svo verið að hækka að nýju í dag eftir því sem efasemdarraddir um hvað gerist næst hafa orðið háværari. Efasemdirnar virðast einnig vera háværar á hlutabréfamarkaði en FTSE vísitalan hefur lækkað um 0,45% það sem af er degi, CAC vísitalan um 0,56% og Dax vísitalan í Þýskalandi hefur lækkað um 0,65% það sem af er degi, segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.



















