Viðskipti
| mbl
| 21.2.2012
| 16:57
| Uppfært
18:14
Walker að ganga frá lánum
Malcolm Walker, forstjóri Iceland Foods, er að ganga frá lánum fyrir 885 milljónir punda, 173,3 milljarða króna, vegna kaupa á 77% hlut í verslunarkeðjunni.
Samkvæmt heimildum London South East ætla Credit Suisse, Deutsche bank, HSBC, Nomura og Royal Bank of Scotland að taka þátt í að lána Walker.
Walker, sem stofnaði Iceland Foods árið 1970, á 23% hlut í keðjunni ásamt fleiri stjórnendum. Í síðustu viku var tilkynnt að slitastjórnir Landsbankans og Glitnis ætluðu að selja Walker hlut sinn í keðjunni. Samkvæmt samningnum er keðjan metin á alls 1,55 milljarða punda.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















