Beiðni Tchenguiz-bræðra samþykkt
Breskur dómstóll hefur samþykkt beiðni bræðranna, Vincents og Roberts Tchenguiz, um að fara yfir mál þeirra þegar þeir voru handteknir í mars í fyrra í tengslum við rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar, Serious Fraud Office, á Kaupþingi. Bloomberg fréttastofan greinir frá þessu í dag.
Tchenguiz bræðurnir munu mæta á ný fyrir dómara í maí þar sem þeir fara yfir sína hlið á málinu en þeir telja að lög hafi verið brotin þegar þeir voru handteknir, segir í yfirlýsingu frá Robert Tchenguiz.
Hann segist sannfærður um að dómarinn sé á sama máli og veiti þeim uppreisn æru.
Ríkissaksóknari Bretlands, Dominic Grieve, fyrirskipaði nýverið rannsókn á starfsemi bresku efnahagsbrotadeildarinnar, Serious Fraud Office, í kjölfar mistaka sem gerð voru við rannsókn á kaupsýslumanninum Vincent Tchenguiz, í tengslum við rannsókn á viðskiptum Kaupþings.
Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar skilaði í desember gögnum sem hald var lagt á í húsleit á skrifstofu kaupsýslumannsins Vincents Tchenguiz. Viðurkennir SFO að ákveðin mistök hafi verið gerð við rannsóknina en Vincent var handtekinn ásamt bróður sínum, Robert, í tengslum við viðskipti við Kaupþing.
Í mars í fyrra voru bræðurnir handteknir auk sjö annarra og færðir til yfirheyrslu í umfangsmiklum aðgerðum á vegum SFO í Lundúnum í tengslum við rannsókn stofnunarinnar á aðdraganda falls Kaupþings. Tveir voru handteknir í Reykjavík vegna málsins.
Í bréfi sem SFO sendi til Vincents Tchenguiz kemur fram að mistök hafi verið gerð og ekki hafi réttar upplýsingar legið fyrir þegar handtökuskipunin var gefin út.
Gögn bendi til þess að handtökuskipunin hafi ekki verið byggð á réttum gögnum og því hefði ekki átt að gefa hana út.
Aðgerðirnar eru liður í rannsókn SFO á greiðu aðgengi bræðranna Roberts og Vincents Tchenguiz að lánsfé hjá hinum fallna banka.




















