Bluebird Cargo í opið söluferli
Boeing 737-þota Bláfugls
PwC hefur verið falið að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á 100% hlut í Bluebird Cargo ehf., sem er í eigu SPW ehf., dótturfélags Miðengis ehf. en Miðengi er eignarhaldsfélag Íslandsbanka.
Bluebird Cargo (Bláfugl) er íslenskt flugfélag sem sérhæfir sig í flugfrakt og blautleigu flugvéla til flutningamiðlara um allan heim, þó einkum í Evrópu, samkvæmt tilkynningu. Félagið hóf starfsemi árið 1994.
Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti, hafa þekkingu og reynslu til að takast á við jafnsérhæfðan rekstur og alþjóðleg starfsemi Bluebird Cargo ehf. felur í sér og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 500 milljónir króna.



















