Krónan veikst um 1% frá byrjun febrúar
Enn lækkar gengi krónunnar og í gær skreið gengisvísitalan yfir 223 stig. Stendur hún nú þegar þetta er ritað, í dag kl. 10:15, í 223,20 stigum. Hefur gengi krónunnar ekki verið svo lágt miðað við gengisvísitöluna síðan um miðjan maí árið 2010. Krónan hefur nú veikst um tæplega 1% frá því í byrjun febrúar og um 2,8% það sem af er ári. Þessi veiking krónunnar nú kemur ekki á óvart þegar árstíðarsveiflan í gengi krónunnar er höfð í huga. Búast má við að krónan muni enn eiga á brattann að sækja á næstu mánuðum, en að umskipti verði með hækkandi sól þegar innflæði vegna ferðamennsku eykst á nýjan leik. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka.
Talsverð sveifla er vegna ferðamannagjaldeyris sem hefur tilhneigingu til að lækka gengi krónu á vetrarmánuðum en hækka hana á sumarmánuðum og fram á haustið, segir í Morgunkorninu. Þannig náði krónan sínu hæsta gildi innan ársins í nóvember bæði í fyrra og á árinu 2010. Lægsta gildi hennar var síðan í júlí í fyrra, þ.e. rétt áður en ferðamannatíminn náði hámarki. Auk krafta árstíðarsveiflunnar skapar útflæði vegna afborgana innlendra aðila af erlendum lánum þrýsting til veikingar krónunnar og reikna má með að það séu einmitt þeir kraftar sem eru að veikja krónuna nú.
Reikna má með að yfirvofandi vaxtagjalddagar og áframhaldandi afborganir af erlendum lánum muni skapa þrýsting til lækkunar á gengi krónunnar á næstu mánuðum og vega á móti væntu innflæði. Nánar er fjallað um þetta í gengisspá Íslandsbanka frá því í byrjun febrúar sem nálgast má hér.



















