Frá Wall Street
AP
Helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu á Wall Street í kvöld en lækkunin er rakin til hagtalna á evru-svæðinu sem benda til þess að efnahagslægð hafi tekið sér bólfestu þar á ný.
Dow Jones vísitalan lækkaði um 0,21%, Nasdaq lækkaði um 0,52% og Standard & Poor's 500 lækkaði um 0,34%.