Viðskipti
| AFP
| 22.2.2012
| 14:30
| Uppfært
16:00
Samdráttur hjá AirAsia
Stærsta lággjaldaflugfélag Suðaustur-Asíu, AirAsia, hagnaðist um 186 milljónir Bandaríkjadala, 23 milljarða króna, á síðasta ári sem er verulegur samdráttur frá árinu 2010 er hagnaðurinn nam 350 milljónum dala.
Tekjurnar voru 1,48 milljarðar Bandaríkjadala, 184 milljarðar króna, á síðasta ári sem er 13% aukning frá árinu 2010.
AirAsia, sem er með höfuðstöðvar í Malasíu, segir í tilkynningu að helsta skýringin á minni hagnaði sé gengistap og erfitt rekstrarumhverfi í heiminum. Eins hafi eldsneytisverð hækkað um 36% á síðasta ári en um helmingur alls kostnaðar hjá félaginu er eldsneytiskostnaður.
Hagnaður á fjórða ársfjórðungi dróst saman um 56,4% og var 44,83 milljónir dala.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















