Viðskipti
| mbl
| 22.2.2012
| 18:02
Skuldabréf seld fyrir 12,5 milljarða
Heildarsala skuldabréfa í verðbréfaútboðum í janúar 2012 nam 12,5 milljörðum króna á söluverði samanborið við 4,1 milljarð mánuðinn áður.
Útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 6,5 milljörðum króna og útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa námu 6 milljörðum króna, samkvæmt hagtölum Seðlabanka Íslands.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















