Umhverfisauglýsingar í sókn

AFA JCDecaux selur einkum auglýsingar í strætóskýli. stækka

AFA JCDecaux selur einkum auglýsingar í strætóskýli. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Veruleg veltuaukning varð hjá umhverfisauglýsingafyrirtækinu AFA JCDecaux Ísland á síðasta ári og það sem af er þessu ári hefur orðið sprenging í pöntunum á auglýsingaplássi en félagið selur einkum auglýsingar í strætóskýli.

Á síðasta ári jókst auglýsingasalan um 15% og það sem af er ári hefur orðið gríðarleg aukning í pöntunum á auglýsingum að sögn Einars Hermanssonar framkvæmdastjóra AFA. Ef miðað er við pantanastöðu yfir árið hefur hún aukist um 200% og sala í janúar og febrúar er 50% meiri en á síðasta ári upplýsti Einar.

„Ef við erum að rísa er markaðurinn að rísa, þar sem við erum aldrei fyrsti kostur,” sagði Einar. Hann sagðist ekki kunna beina skýringu á þessari aukningu en þeir hefðu látið bera meira á sér að undanförnu. Að sögn Einars fara 50% sölunnar fram í gegnum auglýsingastofur og birtingahús og 50% í gegnum þeirra eigin sölu. Hjá fyrirtækinu vinna fimm starfsmenn.

Nýir auglýsendur

Að sögn Einars drógust auglýsingatekjur verulega saman 2009 og fyrri hluta árs 2010 en byrjuðu að aukast á ný í fyrra. Þegar markaðurinn dróst saman lækkaði verðið verulega og nýir auglýsendur fóru að skoða þennan kost.

Lengi vel voru skemmdir á auglýsingaskiltum fyrirtækisins mikið vandamál og lét nærri að ein rúða væri skemmd á dag. Nú hefur ástandið batnað til mikilla muna og í desember og janúar liðu sex vikur án þess að skemmdir yrðum en það er met. Veggjakrot er hins vegar enn mikið vandamál að sögn Einars.

Borgaryfirvöld vildu ekki fleiri salerni

AFA JCDecaux Ísland rekur sex almenningssalerni í Reykjavík í samstarfi við borgaryfirvöld. Tekjur fyrirtækisins koma frá auglýsingasölu og ákveðnum þjónustugreiðslum frá borginni. Að sögn Einars hefur reksturinn gengið vel og nýlega spurðist fyrirtækið fyrir um það hjá borgaryfirvöldum hvort þau vildu að það setti upp fleiri salerni. Ekki reyndist áhugi fyrir því hjá borgaryfirvöldum að svo stöddu og sagði Einar að það hefði komið þeim á óvart þar sem aðsókn að þeim færi mjög vaxandi. „Það voru á milli 40 og 50 þúsund notendur að þessum salernum í fyrra og ljóst að þau eru vinsæl meðal ferðamanna sem þekkja til slíkrar þjónustu erlendis frá,” sagði Einar.

Hann benti að þegar félagið setti upp salerni á Hlemmi hefði borgin lokað öllum salernum  inni í þjónustuhúsinu. Þar hefði því eitt salerni frá þeim komið í stað 10 salerna og sagði hann að notkunin hefði orðið gríðarleg. Því teldu þeir rétt að setja upp fleiri salerni. Þess má geta að það kostar ekkert að nota þessi salerni.

AFA JCDecaux Ísland er íslenskt einkahlutafélag. Móðurfyrirtækið AFA JCDecaux Danmörk sérhæfir sig í gerð á borgargögnum og rekstri þeirra í yfir 1.200 borgum í 23 þjóðlöndum og 4 heimsálfum, Evrópu, Ameríku, S-Ameríku og Ástralíu. Félagið er með skilti í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. 

AFA JCDecaux Ísland rekur sex almenningssalerni í Reykjavík í samstarfi við borgaryfirvöld.

AFA JCDecaux Ísland rekur sex almenningssalerni í Reykjavík í samstarfi við borgaryfirvöld. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.

Hækkun á mörkuðum í Asíu

08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Innsýn í reksturinn

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Sparnaður eykst ekki þrátt fyrir lífeyrissjóðina

Ásgeir Daníelsson
25.5. Samhliða því að lífeyrissjóðirnir hafa vaxið á síðustu 30 árum hefur þjóðhagslegur sparnaður minnkað. Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, telur hugsanlegt að tekjutrygging, sem er hluti lífeyriskerfisins hér á landi, geti skýrt minni sparnað heimilanna. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Yfirmaður öryggismála ákærður fyrir fjársvik

Lloyds Banking Group
25.5. Fyrrum yfirmaður öryggismála hjá breska bankanum Lloyds Banking Group hefur verið ákærður fyrir fjársvik fyrir 2,5 milljón punda, 507 milljónir króna. Meira »

Gæti dregið mikið úr hagvexti

25.5. Fari allt á versta veg á evrusvæðinu með uppbroti myntbandalagsins og viðvarandi efnahagslægð í Evrópu á komandi árum mun slíkt óhjákvæmilega hafa mjög skaðleg áhrif á útflutningsatvinnugreinar Íslands. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir