Viðskipti
| mbl
| 22.2.2012
| 17:46
| Uppfært
18:05
Valitor samdi við Advania
Valitor hefur samið við Advania um hýsingu, netkerfi, tengdan vélbúnað og öryggislausnir fyrir upplýsingakerfi fyrirtækisins.
Í samningnum felst meðal annars tvöföldun Valitor á eigin netkerfi og hýsing hjá Advania með gagnasambandi við vélasali á háhraðaneti. Hýsingin á búnaði Valitor verður hjá gagnaverinu Thor Data Center, sem er í eigu Advania, samkvæmt fréttatilkynningu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















