Afleit afkoma RBS
Tap breska bankans Royal Bank of Scotland nam 1,99 milljörðum punda, 389,40 milljörðum króna, á síðasta ári. Er tapið einkum rakið til afskrifta vegna skulda gríska ríkisins og bóta sem bankinn þarf að greiða vegna mistaka í sölu á tryggingum.
RBS, sem breska ríkið á 82% í eftir að hafa komið bankanum til bjargar árið 2008, tapaði árið 2010 1,12 milljörðum punda. Tap fyrir skatta jókst um 92% á milli ára en hagnaður af fjárfestingarbankasviði dróst saman um 54% á árinu 2011.
RBS hefur fært niður skuldabréfaeign sína í grískum ríkisskuldabréfum um 1,1 milljarð punda. Eins hefur bankinn þurft að greiða viðskiptavinum sínum bætur fyrir hundruð milljóna punda vegna mistaka við sölu á tryggingum til viðskiptavina.
Alls greiddi bankinn starfsfólki 785 milljónir punda í bónusa fyrir árið 2011 sem er 43% lægri fjárhæð heldur en fyrir árið 2010. Þar á meðal er 390 milljónir punda sem starfsfólk á fjárfestingarbankasviði fengu. Er það 58% lægri fjárhæð heldur en RBS greiddi á því sviði fyrir ári síðan í kaupauka.
Hlutabréf bankans hafa hækkað um tæp 3% í kauphöllinni í Lundúnum í dag.



















