DataMarket einbeitir sér að Bandaríkjamarkaði

Hjálmar Gíslason: „ Við stefnum á rétt tæplega 180 milljónir króna í tekjur á þessu ... stækka

Hjálmar Gíslason: „ Við stefnum á rétt tæplega 180 milljónir króna í tekjur á þessu ári.“ Hjálmar Gíslason: ,,Við stefnum á rétt tæplega 180 milljónir króna í tekjur á þessu ári."

Gagnavinnslufyrirtækið DataMarket hefur undanfarið einbeitt sér að Bandaríkjamarkaði og hefur nú lokið mikilvægum samningum þar og náð í öfluga samstarfsaðila. Stefnt er að því að auka verulega veltu félagsins og eru horfur á að hún fari upp í 180 milljónir króna á þessu ári en þegar er búið að tryggja þriðjung þess með sölusamningum.

„Þær breytingar sem við erum að gera færa áhersluna í viðskiptamódelinu okkar á að þjónusta eigendur gagna. Allt frá stórum rannsóknafyrirtækjum sem þurfa að miðla miklu magni gagna til sinna viðskiptavina, til millistjórnanda í hefðbundnu fyrirtæki sem vill skoða sínar tölur í þægilegu viðmóti og jafnvel í samhengi við það sem er að gerast í umhverfinu, til dæmis verðbólgu eða kreditkortaveltu. Notendur DataMarket munu sem sagt frá og með næstu viku geta flutt þangað inn sín eigin gögn, hvort heldur er til eigin nota, opinberrar birtingar eða til að selja gögnin á opnum markaði,” sagði Hjálmar Gíslason stofnandi og forstjóri félagsins.

Að sögn Hjálmars eru þeir á sama tíma að opna fyrir frían aðgang að þeim eiginleikum sem hingað til hafa krafist áskriftar að kerfinu. Þannig á að auðvelda fólki leitina að gögnum sem skiptir það máli með margskonar yfirlitssíðum þar sem tekin eru saman helstu gögn sem skipta máli fyrir hvern atvinnuveg, markhóp, landsvæði og svo framvegis.

Þið virðist vera að leggja mikla áherslu á Bandaríkjamarkað - er það rétt?

„Já, við höfum ákveðið að einbeita okkur algerlega að Bandaríkjamarkaði næstu misserin. Ástæðan er einfaldlega sú að þeir viðskiptavinir, sem við höfum náð að landa og stór hluti þeirra sem eru í pípunni, eru á þeim markaði. Við viljum byggja á þeim árangri og vinna okkur þaðan, án þess að dreifa kröftunum of víða.“

Hvernig gengur að afla viðskiptavina - þú nefnir að þið séuð komnir í samstarf við Yankee Group. Í hverju felst það og hve mikilvægur er hann?

„Yankee Group er rannsóknafyrirtæki sem einbeitir sér einkum að fjarskiptamarkaðnum í Bandaríkjunum og stærstir á því sviði. Þeir eru að innleiða okkar verkfæri sem tól til að veita sínum viðskiptavinum aðgang að þessum rannsóknagögnum, ekki ósvipað því sem Capacent hefur verið að gera hér heima. Þetta er sölusamningur - og okkar stærsti til dagsins í dag - en kveður líka á um þétta samvinnu þar sem við lærum heilmikið um rannsóknaiðnaðinn og þær áskoranir sem svona fyrirtæki glíma við, þeir fá aðgang að okkar sérfræðiþekkingu í framsetningu og meðhöndlun gagna og báðir aðilar njóta góðs af því að útfærslan takist sem best og nái til sem flestra viðskiptavina, jafnt nýrra sem núverandi.

Við erum jafnframt búnir að skrifa undir sambærilegan samning við annað rannsóknafyrirtæki sem tilkynnt verður um á næstu vikum.“

Á hvaða viðskiptavini eru þið að sækja í erlendis?

„Áherslan núna er á rannsókna- og greiningafyrirtæki. Hjartað í þessum fyrirtækjum er öflun og miðlun gagna, en þær aðferðir sem notaðar hafa verið við að dreifa þeim eru hjá flestum þeirra ótrúlega gamaldags. Fyrirtækin eru að senda út með tölvupósti - og jafnvel á pappír - PDF-skjöl, PowerPoint-kynningar og Excel-skjöl með fyrirfram matreiddri úrvinnslu á gögnunum. Þetta er tímafrekt og mjög einhliða streymi upplýsinga og rannsóknafyrirtækin vita í raun lítið hvaða upplýsingar viðskiptavinirnir nota og hvernig.“

Að sögn Hjálmars byggist þeirra lausn á því að fyrirtækið afhendir viðskiptavininum einfaldlega notendanafn og lykilorð þar sem hann getur sjálfur kafað í gögnin, gert þær greiningar sem hann sækist eftir og fengið aðgang að nýjustu gögnum umsvifalaust í myndrænu og notendavænu viðmóti. „Snerting viðskiptavinarins við rannsóknafyrirtækið verður miklu meiri og rannsóknafyrirtækið sér hvaða gögnum menn eru að sækjast eftir, hvaða gögnum menn eru að leita að og finna ekki og svo framvegis.“

Hvernig sjáið þið fyrri ykkur heimamarkað í samanburði við erlendan markað?

„Allt frá stofnun hefur DataMarket verið hugsað með alþjóðamarkað í huga. Á þessu ári stefnir í að tekjurnar okkar komi að 2/3 hlutum frá útlöndum og það hlutfall mun bara hækka. Verður vonandi komið yfir 90% strax á næsta ári.“

Hvaða markaði aðra en USA hyggist þið sækja á?

„Við einbeitum okkur að Bandaríkjunum í bili og förum að huga með virkum hætti að öðrum mörkuðum eftir 2-3 ár ef vel gengur hér.“

Starfsmenn DataMarket eru níu  eins og er en Hjálmar er að flytja út til Bandaríkjanna til að manna nýja sölu- og markaðssetningaskrifstofu sem félagið er að setja upp í Boston. Þannig sjá stjórnendur fyrirtækisins fyrirkomulagið fyrir sér til frambúðar: Þróun og vinnsla verði heima á Íslandi, en sölu- og markaðsstarf erlendis.

Hjálmar sagðist vonast til þess að í lok ársins verði fjórir starfsmenn í Bandaríkjunum og um það bil 15 á Íslandi.

Hvaða rekstrarmarkmið gefið þið upp?

„Við stefnum á rétt tæplega 180 milljónir króna í tekjur á þessu ári. Þar af er rúmur þriðjungur í þegar undirrituðum samningum og tryggum tekjum og við vinnum núna hörðum höndum að því að landa því sem upp á vantar.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.

Hækkun á mörkuðum í Asíu

08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Innsýn í reksturinn

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Sparnaður eykst ekki þrátt fyrir lífeyrissjóðina

Ásgeir Daníelsson
25.5. Samhliða því að lífeyrissjóðirnir hafa vaxið á síðustu 30 árum hefur þjóðhagslegur sparnaður minnkað. Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, telur hugsanlegt að tekjutrygging, sem er hluti lífeyriskerfisins hér á landi, geti skýrt minni sparnað heimilanna. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Yfirmaður öryggismála ákærður fyrir fjársvik

Lloyds Banking Group
25.5. Fyrrum yfirmaður öryggismála hjá breska bankanum Lloyds Banking Group hefur verið ákærður fyrir fjársvik fyrir 2,5 milljón punda, 507 milljónir króna. Meira »

Gæti dregið mikið úr hagvexti

25.5. Fari allt á versta veg á evrusvæðinu með uppbroti myntbandalagsins og viðvarandi efnahagslægð í Evrópu á komandi árum mun slíkt óhjákvæmilega hafa mjög skaðleg áhrif á útflutningsatvinnugreinar Íslands. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir