Gannett rukkar fyrir lestur á netinu
Gannett, stærsta dagblaðaútgáfa Bandaríkjanna, ætlar að krefja lesendur dagblaða í eigu útgáfunnar fyrir lestur á fréttum blaðanna á netinu. Um áttatíu dagblöð eru í eigu Gannett og þarf að greiða fyrir lestur þeirra allra fyrir utan USA Today. Hingað til hefur lestur frétta dagblaða Gannett verið ókeypis á netinu en þessu verður breytt fyrir árslok.
Telur útgáfufélagið að breytingin komi til með að skila Gannett 100 milljónum Bandaríkjadala í tekjur á næsta ári og að tekjur samstæðunnar eigi eftir að vaxa um 2-4% á næstu þremur árum.
Gracia Martore, forstjóri Gannett, segir að fyrirtækið ætli sér að fá tekjur af þeim einingum sem eru verðmætar án tillits til þess hver einingin er. Nokkur bandarísk útgáfufélög eru byrjuð að láta lesendur greiða fyrir lestur á fréttum á vefjum sínum en Gannett er stærsta útgáfan þar í landi sem fer þessa leið. Meðal annars hefur Wall Street Journal alltaf látið greiða fyrir lestur á fréttum á netinu og New York Times hóf að rukka fyrir lestur á fréttum á síðasta ári. Líkt og hjá NYT ætlar Gannett að gefa lesendum kost á að lesa nokkrar fréttir í mánuði áður en þeir þurfa að greiða fyrir aðganginn.
Líkt og önnur dagblöð í Bandaríkjunum hafa dagblöð í eigu Gannett staðið frammi fyrir minnkandi auglýsingatekjum, minni lestri og að flestir lesendur lesi fréttir blaðanna á netinu í stað þess að kaupa dagblöðin í pappírsformi.



















