Viðskipti
| AFP
| 23.2.2012
| 15:30
Hlutabréf lækka en evran hækkar
Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað í dag en evran hefur styrkst gagnvart Bandaríkjadal.
Um miðjan dag hafði FTSE 100 vísitalan lækkað um 0,10% í Lundúnum, DAX hefur lækkað um 0,60% í Frankfurt og CAC í París um 0,36%.
Evran hefur hins vegar hækkað í 1,3301 Bandaríkjadal á gjaldeyrismarkaði í Lundúnum en í gærkvöldi lokaði hún í 1,3252 dölum í New York.
Bandarískar hlutabréfavísitölur lækkuðu lítillega eftir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birti hagspá sína fyrir árið í ár þar sem mildri niðursveiflu er spáð á evru-svæðinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















