Viðskipti
| mbl
| 23.2.2012
| 14:36
Marel greiðir 6,9 milljónir evra í arð
Stjórn Marels leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa vegna reikningsársins 2011 sem nemur 0,95 evru sentum á hlut, en slík arðgreiðsla samsvarar u.þ.b. 20% af hagnaði ársins. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 6,9 milljónum evra, 1.144 milljónir króna.
Viðmiðunardagsetning arðgreiðslu (réttur til arðgreiðslu) yrði við lok viðskipta á aðalfundardegi, 29. febrúar 2012, og arðleysisdagur því 1. mars 2012.
Segir í tilkynningu til Kauphallarinnar að arðurinn verði greiddur út í krónum en þeir hluthafar sem óska hins vegar eftir arðgreiðslu í evrum skulu tilkynna félaginu um slíkt.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















