Niðurfærsla samþykkt
Gríðarleg óánægja er með fyrirhugaðan niðurskurð í Grikklandi og mótmæli daglegt brauð við þinghúsið í Aþenu. AP
Gríska þingið samþykkti í dag frumvarp til laga um að heimila niðurfærslu 107 milljarða evra af skuldum ríkissjóðs hjá bönkum og fjármálastofnunum.
Á sama tíma og frumvarpið var samþykkt varaði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins við því að efnahagslægðin í Grikklandi verði enn dýpri í ár en áður var talið.
Þingmenn í Grikklandi þurfa nú að takast á við afgreiðslu fleiri laga sem setja á varðandi enn frekari niðurskurð en áður. Er samþykki þingsins skilyrði fyrir því að Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn láni Grikkjum 130 milljarða evra til viðbótar við fyrri lán.
Fjármálaráðherra Grikklands, Evangelos Venizelos, hefur þrýst á þingmenn um að samþykkja lögin þar sem skuldadagar nálgast hratt. Segir hann að þeir sem eru andsnúnir lagasetningunni geri sér enga grein fyrir því hvað ástandið er slæmt í landinu.



















