Viðskipti
| mbl
| 23.2.2012
| 14:23
Óbreytt mat hjá Moody's
Matsfyrirtækið Moody's hefur birt álit á lánshæfi íslenska ríkisins. Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs eru óbreyttar, Baa3 fyrir langtímaskuldbindingar og P-3 fyrir skammtímaskuldbindingar. Horfur eru áfram neikvæðar.
Matsfyrirtækið Fitch hækkaði þann 17. febrúar sl. lánshæfiseinkunn Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í BBB- úr BB+. Lánshæfiseinkunnin fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt var einnig hækkuð í F3 úr B og einkunnin fyrir lánshæfisþak Íslands í BBB- úr BB+. Lánshæfiseinkunnin BBB+ fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt var staðfest með stöðugum horfum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















