Viðskipti
| AFP
| 23.2.2012
| 21:31
Olíuverð heldur áfram að hækka
Heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að hækka í dag og hefur ekki verið hærra í níu mánuði.
Er hækkunin einkum rakin til stirðra samskipta Írans og vesturveldanna og árása stjórnvalda í Sýrlandi á stjórnarandstæðinga.
Í New York hefur verð á West Texas Intermediate-hráolíu til afhendingar í apríl hækkað um 1,55 Bandaríkjadali og er 107,83 dalir. Hefur það ekki verið hærra síðan 4. maí í fyrra.
Í Lundúnum hækkaði verð á Brent-Norðursjávarolíu um 72 sent og er 123,62 dalir og hefur ekki verið hærra síðan 2. maí í fyrra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















