P&G ýtir undir hækkun
Helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu í Bandaríkjunum í kvöld en meðal þess sem ýtti undir hækkun Dow Jones vísitölunnar voru fréttir um að Procter & Gamble ætli að draga úr kostnaði í rekstri sem nemur 10 milljörðum Bandaríkjadala fyrir árslok 2016.
Alls missa 5.700 vinnuna
Procter & Gamble, sem framleiðir ýmiskonar vörur fyrir heimili og fyrirtæki, svo sem hreinlætis- og snyrtivörur, ætlar að fækka starfsmönnum um 5.700 fyrir mitt ár 2013. Alls starfa 57 þúsund manns hjá fyrirtækinu við annað en verksmiðjustörf en engum verkamönnum verður sagt upp. Alls eru starfsmenn Procter & Gamble um 129 þúsund talsins.
P&G telur að fyrirtækið nái að spara 800 milljónir dala með uppsögnunum.
Dow Jones hækkaði um 0,36%, S&P 500 hækkaði um 0,43% og Nasdaq hækkaði um 0,81%.



















