Rammagerðin opnar verslun á Akureyri
Gjafavöruverslunin Rammagerðin opnaði í dag, 23. febrúar, nýja verslun á Akureyri. Verslunin er í endurgerðu húsi, Hamborg, að Hafnarstræti 94 á Akureyri.
Lovísa Óladóttir, framkvæmdastjóri Rammagerðarinnar, segist mjög ánægð með að opna nýja verslun í þessu gamla og sögufræga húsi sem auk þess sé á besta stað á Akureyri.
„Við munum bjóða upp á úrval af ullarvörum og fatnað frá 66°NORÐUR sem og gjafavörur með áherslu á íslenskt handverk,“ segir Lovísa í fréttatilkynningu frá Rammagerðinni. Lovísa segir að markmiðið með opnun nýju verslunarinnar sé að sinna betur Norðurlandi. „Við erum að að auka þjónustustigið hér auk þess sem við viljum vera í meiri nálægð við markaðinn á Norðurlandi og okkar viðskiptavini þar,“ segir hún.
Þetta er fjórða verslun Rammagerðarinnar en fyrir eru verslanir í Reykjavík, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á Egilsstöðum. Lovísa segir að Rammagerðin leggi áherslu á íslenskt handverk og handverk úr héraði.
Verslunarstjóri Rammagerðarinnar á Akureyri er Halla Sigbjörnsdóttir.




















