Viðskipti
| AFP
| 23.2.2012
| 21:07
| Uppfært
21:33
Rúmlega 400 missa vinnuna
Flugfélagið Air New Zealand ætlar að segja upp ríflega 400 starfsmönnum fyrir lok rekstrarársins. Á fyrstu sex mánuðum þess dróst hagnaður Air New Zealand saman um 61,2% frá sama tímabili árið á undan.
Að sögn forstjóra flugfélagsins, Robs Fyfes, mun störfum fækka um 441 á næstu mánuðum en nauðsynlegt sé að draga úr kostnaði vegna lélegs uppgjörs. Er samdrátturinn einkum rakinn til hækkunar á eldsneytisverði og efnahagssamdráttar í heiminum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















