SFO bað Tchenguiz afsökunar
Breska efnahagsbrotadeildin, Serious Fraud Office (SFO), hefur sent formlegt bréf til breska kaupsýslumannsins Vincent Tchenguiz, þar beðist er afsökunar á mistökum sem gerð hafi verið þegar hann var handtekinn í mars í fyrra í tengslum við rannsókn á Kaupþingi.
Þetta kemur fram í Financial Times, en blaðið segist hafa séð bréf sem SFO sendi Tchenguiz vegna þessa máls. Í bréfinu er hann beðinn afsökunar á mistökunum sem gerð hafi verið. Mistök hafi verið gerð þegar leita var eftir heimild til húsleitar. Í bréfinu segir að starfsmenn deildarinnar hafi verið mjög uppteknir á þessum tíma vegna þess hve málið var umfangsmikið og flókið.
Tchenguiz hefur lagt fram kröfu um að SFO greiði sér 100 milljónir punda í bætur vegna hnekkis sem hann hafi orðið fyrir vegna þessa máls.
Tchenguiz var stór hluthafi í Kaupþingi, en einnig einn af stærstu lántökum í bankanum. SFO rannsakar hvort Tchenguiz hafi fengið 1,5 milljarða punda (tæplega 300 milljarða króna) lán frá Kaupþingi á grundvelli rangra upplýsinga um veð.




















