Skapar 20.600 störf

stækka

mbl.is/Ómar Óskarsson

Efnahagslegur ábati af flugtengdri starfsemi á Íslandi er margháttaður. Þannig skapar atvinnugreinin alls um 20.600 störf og þjóðhagsleg áhrif á verga landsframleiðslu eru kringum 12,9%. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Oxford Economics um flugstarfsemi á Íslandi sem unnin var fyrir IATA, Alþjóðasamband flugfélaga.

Skýrslan var kynnt á morgunverðarfundi í dag sem Flugmálastjórn Íslands, Isavia ohf., Samtök ferðaþjónustunnar og Icelandair Group stóðu fyrir. Ísland er 56. landið sem Oxford Economics rannsakar með sama hætti og hagfræðingur IATA, Julie Perovic, kynnti niðurstöðurnar.

Á síðari hluta fundarins ræddu efni hennar í pallborði þeir Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Pétur K. Maack flugmálastjóri, Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, og Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.

Julie Perovic rakti horfur í flugrekstri á alþjóðavísu á þessu ári. Kom fram að gert væri ráð fyrir kringum 4% aukningu í farþegaflugi en að fraktflutningar myndu standa í stað. Þá væri útlit fyrir að evrópsk flugfélög yrðu rekin með tapi á árinu svo og flugfélög í Afríku en í öðrum heimshlutum væri gert ráð fyrir hagnaði, að því er fram kemur á vef innanríkisráðuneytisins.

Fram kom hjá hagfræðingi IATA að góð tenging með flugsamgöngum við borgir í öðrum löndum væri undirstaða fyrir verslun og ferðaþjónustu og góðar og víðtækar flugsamgöngur gætu lagt grunn að fjárfestingum og nýjum hugmyndum í atvinnulífi. Hún sagði niðurstöður skýrslu Oxford Economics sýna að Íslendingar byggju við mestu flugtengingar við erlendar borgir miðað við flugstarfsemi í öðrum löndum og það myndi leiða til efnahagslegs ávinnings.

Flugfélög með bækistöðvar á Íslandi annast 78% flugsins

Flugfélög með bækistöðvar á Íslandi annast 78% af öllu farþega- og fraktflugi. Laun, hagnaður og skatttekjur sem stafa frá þessum flugfélögum flæða um íslenska hagkerfið með margfeldisáhrifum á þjóðartekjur og landsframleiðslu, segir á vef ráðuneytisins.


Flugrekstur hefur veruleg áhrif á íslenskt efnahagslíf og stendur undir 6,6% af landsframleiðslu og 9.200 störfum, þ.e. 5,5% af vinnuafli landsins. Ef jafnframt er reiknað með framlagi greinarinnar til ferðaþjónustunnar hækka þessar tölur í 12,9% af landsframleiðslu og 20.600 störf, eða 12,3% af heildarvinnuafli landsins.

Í skýrslu Oxford Economics um Noreg kemur fram að framlag greinarinnar að meðtalinni ferðaþjónustunni er 2,6% af landsframleiðslu, í Svíþjóð er framlagið 3,9% og í Danmörku 2,3% af landsframleiðslu, en hér á landi 12,9% eins og áður var nefnt. Þá skapar greinin með sama hætti 2,1% af heildarvinnuafli í Noregi, 4,1% í Svíþjóð og 1,8% í Danmörku, en 12,3% hér á landi.

Flugrekstur íslenskra fyrirtækja skilaði 10,1 milljarði króna í beina skatta og launatengd gjöld. Áætlað er að 15,4 milljarðar króna til viðbótar renni í ríkissjóð gegnum aðfangakeðju greinarinnar og 9,5 milljarðar að auki frá neyslu starfsmanna í flugrekstrinum sjálfum og aðfangakeðju hans.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Væntingar aukast með hækkandi sól.

Væntingar vaxa lítillega í maí

11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maí mánuði, en Væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Innsýn í reksturinn

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir