Viðskipti
| AFP
| 23.2.2012
| 19:54
Skuldakreppan á borð G20
Fjármálaráðherrar G-20 ríkjanna (20 helstu iðnríkja heims) og seðlabankastjórar munu koma saman á fundi í Mexíkóborg um helgina og ræða skuldakreppuna á evrusvæðinu. Eins verða málefni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til umræðu en auka þarf við sjóði AGS vegna björgunarpakkans sem samþykkt hefur verið að veita Grikkjum.
Vonast leiðtogar Evrópuríkjanna til þess að á fundinum verði samþykkt að auka við sjóði AGS og það þýði að hægt verði að finna varanlegri lausn á skuldakreppunni en hingað til.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















