Valitor fær aðgang að upplýsingum
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem felldi úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að neita Valitor um aðgang að upplýsingum um nöfn og verð í kvörtun Borgunar hf.
Málið snýst um erindi sem Borgun, keppinautur Valitor á greiðslukortamarkaði, sendi til Samkeppniseftirlitsins um meinta misnotkun Valitor á markaðsráðandi stöðu.
Í erindi Borgunar kom fram að meint misnotkun Valitor hafi einkum birst í sértækum aðgerðum sem beint hafi verið að Borgun. Í erindinu er tekið fram að Borgun hf. sé ekki í aðstöðu til að leggja fram óyggjandi sönnunargögn um þessa háttsemi en að grunsemdir félagsins séu reistar á framburði einstakra aðila á markaði sem Borgun hf. telji renna ótvíræðum stoðum undir ætluð samkeppnisbrot stefnanda.
Í kjölfarið var gerð húsleit hjá Valitor og hald lagt á ýmis skjöl og afrit tekin af gögnum sem geymd voru í tölvutæku formi.
Valitor óskaði síðar eftir gögnum tengdu málinu og fékk þau fyrir utan gögn sem Borgun taldi trúnað ríkja um. Síðar fékk Valitor aðgang að umræddum gögnum fyrir utan það að felld voru á brott nöfn fimmtán söluaðila svo og upplýsingar í tíu tilvikum um tilboð Borgunar hf. í þóknanir til söluaðila fyrir færsluhirðingu kreditkorta og/eða debetkorta.
Hæstiréttur taldi að ekki lægi fyrir að hagsmunir söluaðila af því að njóta nafnleyndar hafi verið mun ríkari en hagsmunir Valitors af því að fá fullnægjandi upplýsingar um einstök viðskipti og nöfn þeirra söluaðila sem Borgun hafði fengið upplýsingar hjá. Staðfesti Hæstiréttur því niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um ógildingu úrskurðarins.
Hæstiréttur féllst á sínum tíma á kröfu Valitors um að Samkeppniseftirlitið myndi eyða afritum af 18 tilgreindum tölvupóstum sem lagt var hald á í umræddri húsleit.



















