Hagnaður Spalar 281 milljón
Hagnaður Spalar á tímabilinu 1. október 2010 til 31. desember 2011 nam 281 milljón króna. Á tímabilinu 1. október 2009 til 30. september 2010 nam hagnaðurinn 236 milljónum króna.
Samþykkt var á hluthafafundi í desember 2010 að breyta reikningsári félagsins og verður það því framvegis frá 1. janúar ár hvert til 31. desember. Ársreikningur fyrir árið 2011 nær því til tímabilsins frá 1. október 2010 til 31. desember 2011 eða yfir 15 mánaða tímabil. Samanburðarfjárhæðir í rekstrarreikningi og sjóðstreymisyfirliti eru fyrir 1. október 2009 til 30. september 2010 eða 12 mánaða tímabil og því ekki alveg sambærilegar.
Hagnaður Spalar ehf. eftir skatta á fimmta ársfjórðungi félagsins sem er 1. október 2011 til 31. desember 2011 nam 40 milljónum króna en á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 15 milljónum króna.
Spölur er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.
Um 655 mkr. (2010:600 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á tímabilinu og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2011 eins og lánasamningar gera ráð fyrir. Veggjald ársins nam 1.209 mkr. til samanburðar við 975 mkr. árið áður. Hins vegar er um að ræða 15 mánaða veggjald samanborið við 12 mánaða. Veggjald fyrir tímabilið 1. október 2010 til 30. september 2011 er að fjárhæð 1.010 mkr. sem er 3,6% hækkun frá árinu áður.
Í tilkynningu er haft eftir Gylfa Þórðarsyni, framkvæmdastjóra Spalar, að umferð og tekjur séu sambærilegar og áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir. Tímabilið frá 1. október 2010 til 31. desember 2011 er þrettánda fjárhagsár félagsins.
Á þessu tímabili fóru 2.270 þúsund ökutæki um göngin sem greiddu veggjald sem er um 3% minnkun frá sama tímabili árið áður. Þessi fjöldi samsvara því að um 4.968 ökutæki hafi farið um göngin að meðaltali dag hvern.



















