Hagstæð lán í boði
Seðlabanki Evrópu (ECB) hélt í dag útboð á hagstæðum þriggja ára lánum en þetta er í annað sinn sem slíkt útboð er haldið. Um er að ræða úrræði til að stemma stigu við að skuldakreppan í Evrópu stigmagnist í lausafjárkreppu.
Það var rétt fyrir síðustu jól, 21. desember, sem fyrsta útboðið af þessu tagi var haldið en þá tóku evrópskir bankar að láni 489 milljarða evra. Í dag var upphæðin aðeins hærri eða 530 milljarðar evra sem er meira en búist hafði verið við, segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
„Um er að ræða gríðarlegar fjárhæðir en hafa verður í huga að nettó aukning lausafjár er minni en þessu nemur þegar tekið hefur verið tillit til gjalddaga og breytingar á styttri lánum í þetta lengra úrræði. Þannig er talið að nettó fjáraukning í kjölfar fyrra útboðsins hafi verið í kringum 200 ma. evra.
Reyndar má búast við að nettó fjáraukningin verði meiri í kjölfar útboðsins nú í dag eða allt að 350 ma. evra þar sem bankarnir hafi nú lokið endurskipulagningu lána og muni nú nota lánsfé í auknum mæli til að auka útlán og fjárfesta.
Töluverðar væntingar eru því bundnar við að útboðið í dag muni verða hafa jákvæð áhrif á markaði og verða til þess að létta þrýstingi á skuldabréf skuldsettra evruríkja. Um verulega hagstæða fjármögnun er að ræða fyrir bankana en vextir á lánunum eru reiknaðir sem meðaltal stýrivaxta á tímabilinu og greiddir í einu lagi við lokagjalddaga. Stýrivextir á evrusvæðinu eru nú 1% og gera spár ráð fyrir að þeir muni lækka síðar á þessu ári í 0,75%,“ segir í Morgunkorni.



















