Reiðubúnir til að framlengja tilboð

Sorp. stækka

Sorp. mbl.is/Frikki

Tilboð bandaríska fyrirtækisins Triumvirate Environmental í að kaupa sorpbrennslustöðina Kölku á að renna út í dag en fyrirtækið er reiðubúið að framlengja tilboðsfrestinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

Skulda 950 milljónir króna

„Eins og fram hefur komið í fréttum hefur bandaríska fyrirtækið Triumvirate Environmental óskað eftir því við stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja að kaupa sorpbrennslustöðina Kölku sem er í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Sorpbrennslustöðin sem er í Helguvík var tekin í notkun árið 2004 og er stærsta sorpbrennslustöð landsins búin öflugum hreinsibúnaði og starfar samkvæmt starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Sorpbrennslustöðin Kalka var sett í söluferli fyrir u.þ.b. tveimur árum og þá bárust tvö tilboð í stöðina en hvorgt þeirra reyndist ásættanlegt eða aðgengilegt.  Á fundi með fulltrúum eigenda Kölku síðastliðinn föstudag kynntu forsvarsmenn Triumvirate Environmental viljayfirlýsingu sína og áhuga um kaup á sorpbrennslustöðinni en fyrirtækið hyggst nýta stöðina til að brenna úrgangi frá dótturfélagi sínu í Kanada sem fellur innan þess starfsleyfis sem stöðin hefur.

Fram kom einnig í máli fulltrúa Triumvirate Environmental að félagið hefur á undanförnum árum leitað að starfandi sorpbrennslum sem ekki eru fullnýttar til þess að auka við brennslugetu fyrirtækisins með hagkvæmum hætti.  Sorpbrennsla Kölku mætir að þeirra sögn þeirri þörf þrátt fyrir mikinn flutningskostnað frá Kanada. Samkvæmt viljayfirlýsingunni býðst sveitarfélögunum sem nú eiga hlut í stöðinni að kaupa áfram þjónustu sorpbrennslustöðvarinnar verði af kaupunum og jafnframt býðst þeim að eiga hlut í stöðinni kjósi þau svo. 

Triumvirate Environmental hefur lýst sig reiðubúið til að greiða allt að 10 milljónum Bandaríkjadala eða jafnvirði um 1.250 milljóna íslenskra króna fyrir eignir fyrirtækisins en skuldir Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja í dag nema um 950 milljónum króna.  Upphaflega var gert ráð fyrir að viljayfirlýsingin gilti til dagsins í dag, 29. febrúar en hinir bandarísku aðilar hafa lýst því yfir að þeir séu reiðubúnir til að framlengja þann frest á meðan málið er til umfjöllunar hjá eigendum stöðvarinnar.

Á kynningarfundinum sl. föstudag var ákveðið að vísa erindinu til umfjöllunar og ákvörðunar sveitarfélaganna sem eiga Sorpeyðingarstöð Suðurnesja. Þetta mál er enn á frumstigi og engar frekari upplýsingar fyrirliggjandi um það fyrr en viðkomandi sveitarstjórnir hafa lokið umfjöllun sinni.

Það skal tekið fram að tilboð Triumvirate Environmental í Kölku kemur því aðeins til álita ef tryggt er að öllum umhverfiskröfum sé fullnægt sem og lögum og reglum sem íslensk stjórnvöld setja um starfsemi stöðvarinnar,“ segir í tilkynningu frá Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.

Hækkun á mörkuðum í Asíu

08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Innsýn í reksturinn

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Sparnaður eykst ekki þrátt fyrir lífeyrissjóðina

Ásgeir Daníelsson
25.5. Samhliða því að lífeyrissjóðirnir hafa vaxið á síðustu 30 árum hefur þjóðhagslegur sparnaður minnkað. Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, telur hugsanlegt að tekjutrygging, sem er hluti lífeyriskerfisins hér á landi, geti skýrt minni sparnað heimilanna. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Yfirmaður öryggismála ákærður fyrir fjársvik

Lloyds Banking Group
25.5. Fyrrum yfirmaður öryggismála hjá breska bankanum Lloyds Banking Group hefur verið ákærður fyrir fjársvik fyrir 2,5 milljón punda, 507 milljónir króna. Meira »

Gæti dregið mikið úr hagvexti

25.5. Fari allt á versta veg á evrusvæðinu með uppbroti myntbandalagsins og viðvarandi efnahagslægð í Evrópu á komandi árum mun slíkt óhjákvæmilega hafa mjög skaðleg áhrif á útflutningsatvinnugreinar Íslands. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir