Samdráttur í Slóveníu
Samdráttur mældist 0,7% á fjórða ársfjórðungi síðasta árs í Slóveníu. Er þetta annar ársfjórðungurinn í röð þar sem samdráttur mælist í Slóveníu og en ef slíkt gerist er talað um að samdráttarskeið hafið í landinu.
Á þriðja ársfjórðungi mældist samdrátturinn 0,4% í tölum fyrir þriðja og fjórða ársfjórðung er tekið tillit til árstíðabundinna sveiflna.
Án þess dróst verg landsframleiðsla saman um 2,8% á fjórða ársfjórðungi samanborið við sama tímabil árið á undan. Á þriðja ársfjórðungi var samdrátturinn 0,5%.
Helsta skýringin á samdrættinum er mikill samdráttur í útflutningi. Slóvenía, sem varð hluti af evru-svæðinu árið 2007, hefur átt í verulegum erfiðleikum undanfarið. Hafa matsfyrirtækin lækkað lánshæfiseinkunn ríkissjóðs vegna óvissu um fjármál hins opinbera.



















