Evran keypt á 239 krónur

Evrur
Evrur Reuters

Alls bárust 79 tilboð að fjárhæð 92,9 milljónir evra í útboði Seðlabankans um kaup á evrum og var tilboðum að fjárhæð 22,5 milljónum evra tekið. Kaupir bankinn hverja evru á 239 krónur.

Hinn 14. mars bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri.

Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9.45 og 10.45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13.00 og 14.00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011, segir í tilkynningu.

Seðlabankinn bauðst til að kaupa allt að 100 milljónir evra samanlagt í útboðunum tveimur til fjárfestinga í atvinnulífinu og gegn greiðslu í ríkisverðbréfum. Í útboðinu um kaup á krónum fyrir evrur bauðst Seðlabankinn til að kaupa 25 milljarða króna. Seðlabankinn áskildi sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæðir.

Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í ríkisverðbréfaleiðinni fá fjárfestar afhent verðtryggð ríkisverðbréf RIKS 33 0321. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir 416,7 milljónir króna að nafnvirði.

Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í fjárfestingarleiðinni fá fjárfestar íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Samtals voru keyptar evrur að andvirði 4,9 milljarðar króna í útboðinu.

Niðurstaða útboðs um kaup á krónum fyrir evrur

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð miðast við þau gengi sem tilboðin voru lögð inn á. Alls bárust tilboð að fjárhæð 26,3 ma.kr. Tilboðum var tekið fyrir 4,9 ma.kr. og var lágmarksverð samþykktra tilboða 235 kr. fyrir evru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK